Innlit

Ég flutti mig um set og er nú að blogga á blogspot.com 


Það sem ég finn mé til dundurs er.....

JOL

Ég hef verið að búa til svona stafi ...úr MDF plötum síðan í sumar. Þeir eru skemmtilegir til að skreyta heimilið með þeir eru frístandandi og eru 23.cm háir og 2.5.cm þykkir  . Ef þið sem komið hér við á blogginu mínu hafið einhvern áhuga á að kaupa svona stafi þá sendið mér e-mail kkol@simnet.is
 
HOME
Kristín K.

 

 

 


SÓL Í SVEIT

 Flaggaði því sem ég átti í dag! gleðilegan sautjánda júní kæru landsmenn ..

17.júní


Af hverju er 7.dagur vikunnar svona mikilvægur í augum Guðs?

Ef þú vilt fræðast um það þá getur þú lesið það hér....


Greinin heitir: Sunnudagur nýr hvíldardagur Drottins?

 

 


MILLI SKERS OG BÁRU

 

LOFSÖNGUR

Ísland er vígi vona minnna,
vagga feðra minna og gröf.
Í skauti þess ég frið mun finna.
Frelsið er Drottins náðargjöf;
Í lífi og dauða lifi ég því
landinu mínu kalda í.

 



Ísland, ég bið: ó,Guð þig geymi,
geri þig sanna fyrirmynd
annara þjóða  -  úti í heimi.
Afneita lygi, hatri og synd.
Jesú veri þér vörn og skjól.
Vermi þig lífsins náðarsól.

 

 

Kristnir bræður og kristnar systur,
krjúpum að fótskör lausnarans.
Gáum að því, hvað gjörði Kristur.
Guð minn, hvert lágu sporin hans?
Fórnaði´ hann ekki sjálfum sér
syndinni til að létta af mér?


Gangandi fór hann manna á milli,
meinsemdir lýðsins græddi hann,
ávann sér fólksins ást og hylli,
elskaði sjálfan kærleikann.
Á krossinum vann hann okkur inn
eilíft líf fyrir dauða sinn.


Æðstuprestarnir á hann réðust
ógöfugleikans vopnum með;
ofsóknum þeirra liðsmenn léðust,
lausnarann sviku og þáðu féð.
Þær munu og fylgjast ennþá að 
árásirnar á hann  -  og það.  

 

Jesú, ég fell að fótum þínum!
Frelsari minn, ég kalla á þig!
Vertu í mér og verkum mínum!
Vak þú í mér! Æ, leið þú mig!
Gerðu mig sterkan stríðsmann þinn!
Streym þú í gegnum veikleik minn!  

 

 

Í trúnni á þig er ljúft að lifa.
Lifandi trú á þig er sterk.
Kristin trú megnar bjargi að bifa.
Bænræknin gerir kraftaverk.
Himneski Guð,þín helgu spor
helga þitt nafn á meðal vor.

 

 

Úr ljóðabókinni : MILLI SKERS OG BÁRU (ÚTGEFIÐ 1937)
HÖFUNDUR: MAGNÚS JÓNSSON FRÁ SKAGNESI

 

Kv.KK.
         

 


FIMMTUDAGUR 29.JANÚAR 2009

Joyful Kíkið á þessa síðu


ELSKA SEM BRAGÐ ER AÐ !

Sagan segir frá fátækri Afrískri fjölskyldu í Ameríku, sem fékk eina milljón króna sem tryggingafé eftir lát húsbóndans.  Í þessum peningum sá móðirin möguleika til þess að komast út úr fátækrahverfinu í Harlem, New York og setjast að úti í sveitinni.  Efnileg dóttir hennar gerði sér hins vegar vonir um að nú gætu draumar hennar ræst um að komast í læknaskólann. 

En eldri bróðir hennar grátbað um að fá peningana í fyrirtæki sem hann vildi stofna með vini sínum.  Hann lofaði að sjá vel fyrir þeim öllum þegar fyrirtækið gengi vel, og systir hans fengi örugglega að fara í læknanámið.  Og það var gegn betri vitund sem móðirin ákvað að láta hann fá peningana, í von um að draumar hans rættust, og þar með þeirra allra einnig.

En það fór eins og oft vill verða í ótraustum viðskiptasamböndum, að vinurinn stakk af með allt spariféð og ekkert varð úr rekstri fyrirtækisins. Niðurbrotinn sneri sonurinn heim til að segja móður sinni og systur frá því sem hafði gerst.  Systirin missti algjörlega stjórn á sér, þegar hún skammaðist og reifst og kallaði bróður sinn öllum illum nöfnum.  Fyrirlitning hennar á bróður sínum átti sér engin takmörk.

Þegar hún gerði hlé á árásum sínum á bróðurinn til þess að ná andanum, greip móðir hennar tækifærið og sagði við hana:  “Ég hélt að ég hefði kennt þér að elska bróður þinn.”  En stúlkan svaraði með enn meiri fyrirlitningu.  “Elska hann?  Það er ekkert eftir til þess að elska!”En móðirin var ekki á því að láta dóttur sína sleppa svona auðveldlega frá því að læra eina dýrmætustu lexíu lífsins.  “Það er alltaf eitthvað eftir í fólki til þess að elska.  Og ef þú hefur enn ekki lært það, hefur þú ekki lært nokkurn skapaðan hlut,” sagði móðirin.  “Hefur þú grátið með bróður þínum í dag?  Og ég á ekki við það hvort þú hafir grátið vegna sjálfs þín, eða vegna þess að við sem fjölskylda höfum tapað öllum fjármununum.  Heldur það, hvort þú hafir grátið vegna þeirrar erfiðu reynslu sem hann hefur mátt upplifa í þessu, og svo yfir því sem þetta allt gerir honum.  Barnið mitt!  Hvenær heldur þú að rétti tíminn sé til þess að elska aðra manneskju?  Það er sko alls ekki þegar allt leikur í lyndi hjá henni, eða hjá sjálfri þér.  Nei, alls ekki!  Heldur er það þegar bróðir þinn hefur glatað öllu sjálfstrausti og er algjörlega niðurbrotinn maður, ekki síst þegar hann gerir sér grein fyrir því, hvað gjörðir hans hafa gjört öðrum.

Kæri lesandi.  Þetta viðhorf móðurinnar lýsir sannri náð og miskunn.  Þegar mannleg vera hefur öðlast slíkt innsæi og sýnir slíkan skilning á því hvað felst í innilegri samúð og hluttekningu, þá getum við byrjað að skilja þann eilífa kærleika og undursamlegu fyrirgefningu sem okkar himneski Faðir og Drottinn sýnir okkur mönnunum.  Og öll erum við syndarar.  Öll erum við brotleg og höfum oft valdið Guði okkar ákaflega miklum vonbrigðum.  Hefur þú lært að elska aðra eins og Guð elskar þig?  Og hefur þú lært að fyrirgefa öðrum eins og hann fyrirgefur þér?

Kærleikskveðja  K.K.


ÞEIM MUNAR EKKERT UM EINA KRÓNU!

Ný skipaður prestur  í litlu  bæjarfélagi þurfti að skreppa til borgarinnar  að sinna erindi sínu . þegar hann var sestur  niður í strætisvagninum  áttaði hann sig á því að strætisvagnabílstjórinn hafði  óvart gefið honum  eina krónu of mikið til baka .  Hann  íhugaði hvað hann ætti að gera , og hugsaði  að hann , yrði  að leiðrétta þetta og skila þessari einu krónu til vagnstjórnas, annað væri rangt.  En svo hik og  Æ , ein króna ,þetta er svo lítið að það tekur því ekki  að skila einni krónu.Strætisvagnabílstjórinn  myndi  örugglega ekki  taka eftir því , þeir græða víst nóg af peningum hjá þessu srætisvagnafyrirtæki,  því munar ekkert um að verða af þessari einu  krónu sem ég fékk aukalega til baka.  Hugsaðu bara að þetta sé gjöf frá Guði  sagði hann við sjálfan sig og vertu ekkert að segja neitt frá þessu.  Þegar  vagninn stansaði   þar sem presturinn ætlaði úr vagninum  stoppaði hann andartak á leiðinni út og rétti  vagnstjóranum krónuna  og sagði, hérna er ein króna  þú gafst mér of mikið til baka.Vagnstjórinn brosti og svaraði , Já heyrðu! ert þú ekki nýji presturinn í bænum ?  Jú  svaraði presturinn. Ég hef verið að hugsa mikið að undanförnu og mig hefur lengi langað að koma í  kirkjuna og hlýða á Guðs orð  og mig  langaði bara til að sjá hvað þú myndir gera ef ég gæfi þér of mikið til baka .
Ég sé þig í kirkjunni  á hvíldardaginn! 

Þegar presturinn  kom út úr vagninum greip hann um næsta  ljósastaur og hélt sér í hann  mjög hrærður og hugsaði Ó! Guð minn  fyrirgefðu mér ,ég var næstum búinn að selja Son þinn fyirir  eina krónu.  

Matt 25:21
Húsbóndi hans sagði við hann: Gott, þú góði og trúi þjónn. Yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk inn í fögnuð herra þíns.



Líf okkar er sú eina BIBLÍA  sem sumir munu lesa . Þetta er  dæmi um það hve mikið fólk horfir til okkar sem erum kristin  og það munu verða lagðir fyrir okkur  prófsteinar  í  lífinu ! Verum ávallt  vakandi –
og munum – Við berum  ábyrgð þegar við tökum kristna trú.

Kveðja Kristín Ketilsdóttir  

HVAÐ SEGJA SVONA TEXTAR ÚR BIBLÍUNNI OKKUR ?

Jer 8:13Ég vil safna þeim saman eins og um uppskeru segir Drottinn en engin vínber eru á vínviðinum og engar fíkjur á fíkjutrénu, og laufið er fölnað. Vil ég því selja þá þeim á vald, er þá munu upp eta.

Jes 64:6Enginn ákallar nafn þitt, enginn herðir sig upp til þess að halda fast við þig, því að þú hefir byrgt auglit þitt fyrir oss og gefið oss á vald misgjörðum vorum.

Jes 61:11Því eins og jörðin lætur gróður sinn koma upp og eins og aldingarðurinn lætur frækornin upp spretta, svo mun hinn alvaldi Drottinn láta réttlæti og frægð upp spretta í augsýn allra þjóða.  

 

Jer 20:13Lofsyngið Drottni! Vegsamið Drottin, því að hann frelsar líf hins fátæka undan valdi illgjörðamanna.

LESUM ORÐ GUÐS! OG HLUSTUM Á ORÐ GUÐS 

HVAÐ ER LANGT TIL ENDALOKANNA ?


Næsta síða »